| Asian Wing reynist vel | Skoða sem PDF skjal | Array Prenta út Array | Senda hlekk á þessa síðu til vinar |
| Skrifað af Magnús Sveinsson |
| Þriðjudagur, 17 Ágúst 2010 14:49 |
|
Asian Wing hjólið eða Vængurinn eins og við hérna í Nítró höfum kallað hjólið hefur verið í reynsluakstri síðustu vikur. Búið að keyra prufuhjólið yfir 500 km. við mismunandi aðstæður og óhætt er að segja að það hafi komið skemmtilega á óvart. Hjólið hefur ekki slegið feilpúst þrátt fyrir að vera ekið við hinar erfiðustu aðstæður af vönum ökumönnum sem kalla ekki allt ömmu sína. Kramið í hjólinu er mjög gott og það dettur í gang eins og klukka, fjöðrunin virkar vel og mótorinn skilar fínum krafti, og ef einhver vill meiri orku þá er örugglega hægt að fá hana með kraftpústi og smá tjúningum. Nú er þetta skemmtilega hjól á sérstöku kynningartilboði í Nítró á aðeins 799.900,- með skráningu. |
| LAST_UPDATED2 |

